Vilborg's profileTöfraveislur + VilborgPhotosBlogListsMore Tools Help
ÉG  
Photo 1 of 4
There are no music lists on this space.

Töfraveislur + Vilborg

Sjálfstæðisflokkurinn er bestur
27 November

Sörur

Er byrjuð að baka sörur 50 stk. á 3000.- neyðist til að hækka, hafði ekki hækkað verðið í 3 ár............. og hráefni í sörunar hafði hækkað um rúm 50%.
 
Tek við pöntunum til 15. des. 2008 í síma 554-4542. eða sendið tölvupóst vateddi@hotmail.com
12 May

Brosið

Bros


Ég gerði merkilega uppgötvun í dag.  

 Ég uppgötvaði að bros er jafnsmitandi og flensa.
Það brosti til mín alókunnugur maður og  

 ég brosti á móti og hélt svo bara áfram að brosa.
Ég labbaði fyrir næsta horn þar sem  

 ég mætti öðrum ókunnugum manni.
Þegar hann sá mig brosa, brosti hann á móti  

 og gekk svo brosandi í burtu.  

 Þá laust niður hjá mér þessari staðreynd,  

 ég hafði smitað hann.
Guð veit hvað hann hitti marga og smitaði þá.  

 Ég fór að hugsa um þetta bros og
skildi þá hversu mikils virði það er.
Eitt lítið bros eins og mitt,  

 gæti breiðst út um heimsbyggðina.
Svo ef þú finnur að þú ert að bresta í bros,  

 ekki halda aftur af því.  

 Komum af stað faraldri sem fyrst,

stefnan er að smita allann heiminn.


BROSTU


23 March

Gullkornin hennar Mörtu

Hæ, Þessi gullkorn sem ég fann á heimasíðunni hennar Mörtu www.pulsinn.is og þau eiga svo vel heima í okkar nútíma þjóðfélagi. Red rose

*Sá veiki getur aldrei fyrirgefið. Fyrirgefning er eiginleiki þess sterka.
-Mahatma Gandhi


*Góðverk er næring þegar þú þegir yfir því.
-Óþekktur höfundur


*Kærleikurinn er markmið allra markmiða. Fyrirgefningin veitir okkur frelsi. Þakklæti gerir okkur kleift að lifa lífinu til fulls.
-Óþekktur höfundur

*Hlustaðu á náttúruna. Lærðu að meta fegurð. Virtu hugboð þín varðandi liti, mynstur og form. Skapaðu umhverfi sem laðar að hamingju og gæfu.
-Victoria Moran (úr bókinni "Fegraðu líf þitt")

*Fyrirgefningin er undirstaða hamingjunnar.
-Dr.Doreen Virtue (úr bókinni "Heilun með álfum")

*Þessi staður, þessi stund, þetta fólk, þessar kringumstæður. Allt er eins og það á að vera, núna!
-Óþekktur höfundur

*Guð notar kringumstæður þínar til að breyta þér, áður en hann breytir kringumstæðum þínum.
-Óþekktur höfundur

*Anda inn í núið. Anda frá, slökun. Njóta augnabliksins, þess sem er núna.
-Heilbrigð skynsemi!

*Við hættum ekki að leika okkur af því að við verðum gömul. Nei.
Við verðum gömul af því að við hættum að leika okkur!
-Nýárskveðja

*Don´t cry because it´s over. Smile because it happened!
-óþekktur höfundur

*Þar sem gleði ríkir, þar eru englar!
-Heilbrigð skynsemi!

*Annað slagið skaltu horfa á eitthvað sem er ekki gert af manna höndum: fjall, stjörnu, bugðóttan læk. Þú munt öðlast visku og þolinmæði en öllu framar fullvissu um að þú ert ekki einn í þessum heimi.
-Sidney Lovett (úr bókinni "Lögmál andans" eftir Dan Millman)


Ég fór til Kópavogs í dag í matarboð og það var æðislega gaman og ég er svo þakklát guði fyrir að gera líf mitt svona yndisleg.
knúss og kossar Vibba



21 March

Kærleikur

Hvar er kærleikurinn í okkar þjóðfélagi, afhverju er fólk svona kalt í höfuðborginni. Við búum í samfélagi og í samfélagi verðum við lifa og hjálpa hvert öðru í stað þess að reka rýting í bakið á næsta manni. Því miður virðist sumt fólk vera en í sandkassanum. Hvað getum við gert jú réttum fram hönd til hjálpar og hjálpum hvort öðru.
Kærleikur er eitthvað sem þú og ég verðum að eiga. Við verðum að eiga hann vegna þess að andi vor nærist á honum. Við verðum að eiga hann vegna þess að án hans verðum við máttlítil og veikburða. Sjálfstraust okkar þverr án kærleika. Djörfung okkar hverfur. Við getum ekki horft  í trúfesti til heimsins. Við hverfum inn á við og förum að nærast á eigin eðlisþáttum, og smám saman eyðum  við  honum sjálf. Full kærleika erum við skapandi. Full kærleikahöldum við óþreytandi árfam. Full kærleika og eingöngu í krafti hans getum við fórnað okkur fyrir aðra.

Hvað er kærleikur  ?

Kærleikur er, hvert góðverk sem þú vinnur.

Kærleikur, er hvert bros sem þú gefur.

Kærleikur, er að faðma þann sem grætur.

Kærleikur, er að hugga þann sem syrgir.

Kærleikur, er að gefa þeim sem þarfnast.

Kærleikur, er umhyggja fyrir öllu sem lifir.

Kærleikur, er að biðja fyrir öllum, góðum sem slæmum.

Kærleikur, er að lifa sáttur við sjálfan sig og aðra.

Kærleikur, er að dæma ekki.

Kærleikur, er ljósið sem býr í hjarta þínu.

Elskum hvort annað og njótum þess

kveðja Vilborg

18 March

Tveir dagar í 38 árin

Vá ég er bara að verða 38 ára.........baby.

Bakaði pésa bita í morgun og syni mínum fannst það sko ekki slæmt, ísköld mjólk og pésa bitar nammi namm.
Nú var ég að skella inn tröllakjúkling í ofnin, dugar okkur örugglega í marga mata.
Óskup er ég eitthvað tóm...........veit ekkert um hvað ég á að skrifa.

reyni að blogga meira síðar kv. Vilborg
24 February

Dans og spottar

Jæja þá er best að blogga..........þetta er búið að vera stuð vika........fyrst hiti og hausverkur svo kom í ljós að hitin stafaði af sýkingu frá spottum sem voru að reyna komast út. Þessir spottar voru saumaðir í mig 1995 þegar ég var spengt á mjaðmagrind og baki alveg ótrúlegt að þetta skuli vera að ganga út núna, eða ekki ég er farinn að hreyfa mig svo mikið á hverjum degi einhver hreyfing dans eða ræktin. Á föstudagskvöldið fór ég í orkudans og vá þvílíkt flæði......svo þegar ég búinn í dansi kemur rúsínan í pylsuendanum gott bað með góðu slakandi baðsalti.
Í gær fór ég svo í shjakradans sem er dans til að heila orkustöðvarnar og dönsuðum við í 5 tíma og það var æði og engar harðsperrur í dag.
Svo í dag er ég búinn að leiðbeina börnunum í golfi, skellti mér svo í heimsókn til vinkonu minnar og hún sagði mér ekki góðar fréttir hún þarf að fara í legnám var að greinast með krabba í leginu....æææææææ afhverju er þessi krabbi alltaf að troða sér inn í líf fólks, skilur hann það ekki að hans er ekki óskað. Ég vildi óska þess að krabbinn væri ekki til, en líklega væri þá bara eitthvað annað slæmt.............Ég þá ósk heitasta að landlæknir taki upp bólusettningu gegn leghálskrabba, því fyrr því betra.  Eg fór svo til Reynis Katrínar og bað hann að biðja fyrir henni, þegar svona lagað kemur upp verður fólk að standa saman og biðja til guðs og allra góðra vætta um hjálp.
 
Jæja nú eru fréttir að byrja.
bæjó Vibba
 
 
21 February

Æ Ó

Hér sit ég í hægindastólnum, og tek því rólega er með hita og hausverk...........flensan kominn í heimsókn gaman gaman.........
Veit ekkert hvað ég á að segja enda er hausinn í stuði. Confused
Á morgun ætla ég að vera orðin góð enda er ég að fara í dansinn annað kvöld.
bæjó í bili Vilborg
 
Endilega kvittið fyrir heimsóknina
Knús og kossar Vibba

Please wait...
Sorry, the comment you entered is too long. Please shorten it.
You didn't enter anything. Please try again.
Sorry, we can't add your comment right now. Please try again later.
To add a comment, you need permission from your parent. Ask for permission
Your parent has turned off comments.
Sorry, we can't delete your comment right now. Please try again later.
You've exceeded the maximum number of comments that can be left in one day. Please try again in 24 hours.
Your account has had the ability to leave comments disabled because our systems indicate that you may be spamming other users. If you believe that your account has been disabled in error please contact Windows Live support.
Complete the security check below to finish leaving your comment.
The characters you type in the security check must match the characters in the picture or audio.

Vilborg Auunsdgttir

Interests
Lífið er yndisleg